Um bókina
Greint er frá umsvifum og dvalarstöðum setuliðsins á stríðsárunum, reynslu og kynnum liðsmanna og heimamanna, hermennskulífi, loftárásum, mannskæðum slysförum og vofveifilegum atburðum. Margar áður óbirtar ljósmyndir prýða bókina og fjallað er um braggabúðir, búnað og farartæki sem komust í hendur Íslendinga.













