Heimsréttir Rikku
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 93 | 3.310 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2011 | 93 | 3.310 kr. |
Um bókina
Sjónvarpskokkurinn Rikka leggur upp í sælkeraleiðangur í eldhúsinu og ferðast um átta lönd sem öll eru þekkt fyrir framlag til matargerðar heimsins. Hún gefur einfaldar og girnilegar uppskriftir að frægum og frábærum réttum sem einkenna matargerð hvers lands um sig; hér er frönsk lauksúpa, ítalskt ragú bolognese, marokkóskt tagine, sænsk kladdkaka, pakistanskt seekh kebab, taílenskir karamellu- og kókosbananar og ensk smalabaka, svo fáein dæmi séu tekin. Rikka kemur líka með eigin tilbrigði við suma réttina og gefur góð ráð sem nýtast í eldhúsinu.
Friðrika Hjördís Geirsdóttir lærði matargerð í London og hefur gert fjölda matreiðsluþátta fyrir sjónvarp, haldið eftirsótt námskeið og sent frá sér geysivinsælar matreiðslubækur. Heimsréttir Rikku er fjórða bók hennar.