Um bókina
Bókin fjallar á einlægan og hispurslausan hátt um afleiðingar ástandsins á fjölskyldu sem skilin er eftir í sárum í litlu sjávarþorpi lengst norður á landi eftir að móðirin yfirgefur þau. Einstæður fátækur faðir tekur ákvörðun um að halda þremur börnum sínum hjá sér sama hvað tautar og raular. Fjölskyldan lifir í skugga fordóma og fátæktar þar sem ráðskonur sjá að mestu um uppeldi barnanna hver með sínu lagi. Þessi ákvörðun móðurinnar hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar á líf og samskipti barnanna við föður sinn.













