Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Halaveðrið mikla
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 176 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 176 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
Í febrúar 1925 gekk mikið óveður yfir Ísland – það mesta frá upphafi mælinga. Þök fuku, hlutar rifnuðu af húsum og hurfu út í buskann. Fimm manns urðu úti í fárviðrinu.
Áhrif hamfaranna urðu þó mest á sjó, nánar tiltekið á Halamiðum á Vestfjörðum. Þar var fjöldi togara að veiðum og börðust áhafnir þeirra hetjulega við hamslaust veður. Sum skipanna náðu landi, önnur ekki. Alls drukknuðu 74 sjómenn í Halaveðrinu mikla.
Hér lýsir Steinar J. Lúðvíksson baráttu togarasjómanna við verðurofsann sem og hamförum á landi og styðst m.a. við frásagnir þeirra er náðu heilir í höfn. Steinar gjörþekkir sjóslysasögu Íslands og er höfundur stórvirkisins Þrautgóðir á raunastund sem kom út í nítján bindum og naut mikilla vinsælda.