Grænir grasadraumar

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2023 80 4.990 kr.
spinner
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Mjúk spjöld 2023 80 4.990 kr.
spinner

Um bókina

Bókin er vísun í orðatiltækið „grasið er alltaf grænna hinumegin“ og gagnrýni á kapítalískt samfélag, heimspekilegar pælingar um Dauðann, dagdrauma og tengingu mannfólksins við náttúruna.

 

að skilja ekki abstrakt list

 

ég sakna þess

að eiga drauma um heimsreisu, íbúð og fjölskyldu með tveimur börnum

áðan keypti ég papriku fyrir þrjúhundruð krónur

 

nú hef ég tæmt draumafötuna vegna raunsæis

draumarnir flæddu eins og vatnskennd málning

mynduðu abstrakt listaverk

þá heyrði ég í einhverjum segja:

„öhm eh ég skil ekki svona… svona abstrakt“

ég svaraði:

„auðvitað, ertu kapítalisti og styðuru sjálfstæðisflokkinn?“

 

draumarnir sem komu í staðinn litu út eins og innkaupalisti uppá ísskáp:

  • að eiga efni á hollum mat
  • að þurfa ekki að eyða öðru kvöldi með pakkanúðlum

sem glútenóþolandi

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Grænir grasadraumar”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

INNskráning

Nýskráning