Gleðin að neðan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2018 | 352 | 3.990 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2018 | 352 | 3.990 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Kynfæri eru ekki beinlínis ný uppfinning en ótrúlega margir vita alls ekki nógu mikið um líkama sinn. Veist þú til dæmis af hverju það er sárt að fara á túr? Er meyjarhaft til í alvöru? Af hverju finnst þér erfitt að fá fullnægingu? Hversu lengi getur maður frestað því að eignast börn?
Þessi skemmtilega og greinargóða bók geymir allt sem þú þarft að vita um kynfærin og kynlíf. Hér geturðu kynnt þér dýpstu leyndardóma snípsins, villtan hormónadans tíðahringsins og hvernig getnaðarvarnir virka á líkamann. Þú getur líka lesið þér til um algenga kyn- og kvensjúkdóma og fundið svör við spurningunum sem stundum er erfitt að spyrja.
Gleðin að neðan er fyrir alla með píku.
Læknanemarnir Ellen Støkken Dahl og Nina Brochmann halda úti vinsælli bloggsíðu sem heitir „Underlivet“. Bókin er myndskreytt af Tegnehanne, teiknara, bloggara og hjúkrunarfræðingi.
Saga Kjartansdóttir þýddi.
4 umsagnir um Gleðin að neðan
Arnar Tómas –
„Fróðlegustu og aðgengilegustu skrif um kynfæri kvenna sem ég hef nokkurn tímann séð… Hér er næg vitneskja, eldmóður og húmor til að heilla gamlar frænkur upp úr skónum.“
Morgenbladet
Arnar Tómas –
„Mikilvægastur af öllu er tónninn, léttur og laus við gildishlaðna dóma, sama hvert umfjöllunarefnið er. Hér eru engar umvandanir, bara hlutlausar upplýsingar.“
Dagavisen
Arnar Tómas –
„Þú ert með heimskort á milli fótanna og þar eru margar ókannaðar slóðir. Þessi bók er Lonely Planet-leiðsögubókin þín um svæðið þarna niðri.“
Women’s Health
Arnar Tómas –
„Best tekst höfundunum upp þegar þær fjalla um allar mýturnar sem umlykja kvenlíkamann og starfsemi hans, svo sem tíðabæðingar, kynlíf, langanir og sjálfsfróun… Nauðsynleg bók fyrir allar konur og alla heilbrigðisstarfsmenn sem vinna með konum.“
Library Journal