Fléttur VII: Hinsegin Ísland í alþjóðlegu samhengi

Almenn rit

Fléttur VII: Hinsegin Ísland í alþjóðlegu samhengi

2025 · 259 bls.

Veldu snið

5.390 kr.

Til á lager

Um bókina

Hér er rýnt í aðstæður hinsegin fólks á Íslandi: réttindi intersex fólks greind, varpað ljósi á ofbeldi og mismunun gegn jaðarsettum hópum innan hinsegin samfélagsins, hinsegin fjölskyldur skoðaðar út frá áhrifum nýfrjálshyggju og fjallað um viðhorfabreytingu í íslensku samfélagi. Í greinasafninu er sjónum einnig beint að mismunandi flötum sögu og menningar frá hinsegin sjónarhorni. Hugtakið lífsförunautar er mátað við samband tveggja kvenna sem héldu saman heimili snemma á síðustu öld, hugað er að viðtökum Taílandsþríleiks Megasar og hinsegin þræðir raktir í skáldverkum Knuts Hamsuns, Halldórs Laxness og Hallgríms Helgasonar. Síðast en ekki síst er rýnt í tungumálið og meint kynhlutleysi orðsins maður.

Karfan þín

Valmynd