Fingraför spekinnar

Almenn rit

Fingraför spekinnar

eftir Gunnar Harðarson

2024 · 154 bls.

Veldu snið

4.490 kr.

Til á lager

Um bókina

Ýmis ummerki eða spor eftir heimspekilega hugsun er að finna í miðaldarbókmenntum Íslendinga, hvort heldur í kvæðum, sögum eða lögum. Þar má sjá hugmyndir um heimspeki, beitingu heimspekilegra hugtaka og rökfærslur af heimspekilegum toga. Í þessari bók er gerð tilraun til að nálgast þá hugmynd um heimspeki sem íslenskir lærdómsmenn kynnu að hafa aðhyllst á miðöldum. Einnig er athyglinni beint að heimspekilegum og siðfræðilegum hugtökum, bæði í Hómilíubókinni og Hávamálum, heimspekilegar rökfærslur í Snorra-Eddu eru brotnar til mergjar og í kjölfarið reynt að skilja með  hvaða hætti alfræðileg hugsun birtist í handritum á borð við Hauksbók. Í lokin er gefið yfirlit um rannsóknir á siðfræði Íslendingasagna þar sem ólík sjónarmið eru rakin og rædd.

Karfan þín

Valmynd