Farsótt: Hundrað ár í Þingholtsstræti 25

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2022 518 7.590 kr.

Farsótt: Hundrað ár í Þingholtsstræti 25

7.590 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2022 518 7.590 kr.

Um bókina

Þetta er saga um sjúkdóma, lækningar og tilraunir til að vernda samfélagið gegn sóttum. Þetta er saga borgar og velferðarkerfis en ekki síst saga af fólki. Aðalpersónan er þó gamla timburhúsið sem byggt var árið 1884 sem fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga. Síðar var það gert að farsóttaspítala, geðsjúkrahúsi og seinast gistiskýli fyrir heimilislausa.
Á horni Þingholtsstrætis og Spítalastígs stendur hús sem á sér viðburðaríka sögu. Það var byggt árið 1884 sem fyrsta sjúkrahús Reykvíkinga. Síðar var það gert að farsóttaspítala og geðsjúkrahúsi og seinast að gistiskýli fyrir heimilislausa.Farsótt. Hundrað ár í Þingholtsstræti 25 er saga um heilbrigði og sjúkdóma, sem sumir þóttu ógnvænlegri eða skammarlegri en aðrir. Þetta er saga af lækningum og tilraunum til að vernda samfélagið gegn smiti og sóttum. Þetta er saga borgar og saga velferðarkerfis en ekki síst saga af fólki: Sjúklingum og hjúkrunarkonum, læknum og ljósmæðrum, hómópötum, þurfamönnum, vinnukonum, verkamönnum, útigangsmönnum, sjómönnum, lögreglumönnum, miðlum og skáldum. Aðalpersóna bókarinnar er þó gamla timburhúsið sem enn gengur undir sínu dulúðuga nafni: Farsótt.

Kristín Svava Tómasdóttir er sagnfræðingur og ljóðskáld. Hún er höfundur bókarinnar Stund klámsins, sem hlaut Viðurkenningu Hagþenkis árið 2018, og einn af höfundum Konur sem kjósa, sem hlaut Fjöruverðlaunin í flokki fræðirita árið 2020. Kristín Svava hefur sent frá sér fjórar ljóðabækur, síðast Hetjusögur sem hlaut Fjöruverðlaunin í flokki fagurbókmennta árið 2020.

Umsagnir

Engar umsagnir komnar

Be the first to review “Farsótt: Hundrað ár í Þingholtsstræti 25”

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

4.690 kr.
2.490 kr.
2.190 kr.
4.890 kr.
5.390 kr.
3.490 kr.4.090 kr.
2.790 kr.
4.590 kr.
2.090 kr.

INNskráning

Nýskráning