Fáninn – The Flag
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2014 | 2.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2014 | 2.290 kr. |
Um bókina
Þegar sjálfstæðisbarátta Íslendinga komst á skrið um miðja nítjándu öld var það frelsisvinum mikill þyrnir í augum að Íslendingar skyldu ekki eiga sér sinn eigin fána. Tilraunir til að skapa einkennistákn þjóðarinnar strönduðu hins vegar jafnt á óvilja Dana sem óeiningu Íslendinga sjálfra auk þess sem vinsælasta fánahugmyndin, Hvítbláinn svokallaði, þótti of keimlík fánum annarra þjóða.
Því ákvað Alþingi að skipa sérstaka fánanefnd sem skyldi taka á málinu. Fæstir þjóðfánar ríkja heims hafa verið valdir á viðlíka hátt: með þátttöku almennings. Árið 1913 lagði fánanefnd, skipuð af ráðherra Íslands, Hannesi Hafstein, fram skýrslu með tillögum að nýjum íslenskum þjóðfána, fánanum sem við þekkjum í dag.
Fólk úr ýmsum stéttum þjóðfélagsins stakk upp á formum og litum af margvíslegum gerðum og allar tillögurnar voru birtar í skýrslunni sem fánanefndin gaf út um störf sín. Þessar tillögur komu hins vegar aldrei fyrir sjónir manna nema sem fáorðaðar lýsingar. Í Fánanum – The Flag birtast þessar skriflegu tillögur í fyrsta sinn á myndrænan hátt.
Texti bókarinnar er bæði á íslensku og ensku.