Fangar breta: Saga Íslendinganna sem voru fangelsaðir og fluttir til Bretlands í seinni heimsstyrjöldinni

Almenn rit

Fangar breta: Saga Íslendinganna sem voru fangelsaðir og fluttir til Bretlands í seinni heimsstyrjöldinni

eftir Sindri Freysson

2024 · 344 bls.

Veldu snið

6.290 kr.

Til á lager

Um bókina

Vitað er með vissu um 47 Íslendinga sem Bretar handtóku á stríðsárunum frá 1940-1945 og vistuðu í fangelsum í Englandi. Þeir sátu innilokaðir í Bretlandi allt frá nokkrum mánuðum til tæplega þriggja og hálfs árs.  Sakargiftir voru misjafnar og í æði mörgum tilvikum veigalitlar.

Enginn fanganna fékk að leita sér lagalegrar aðstoðar eða verja sig fyrir dómstólum. Iðulega dró fangavistin dilk á eftir sér og skildi eftir djúp ör á sálum þeirra sem lentu í þessum hremmingum. Hér birtist saga þessa fólks.

Karfan þín

Valmynd