Eins og við erum: Hugmyndabók um eðli mannfólksins

Almenn rit

Eins og við erum: Hugmyndabók um eðli mannfólksins

eftir Ólafur Halldórsson

2026 · 314 bls.

Veldu snið

3.190 kr.

Til á lager

Um bókina

Þessi bók er hugmyndabók um eðli mannfólksins einkum út frá líffræðilegum sjónarhóli. Fjallað er um fjölbreytileika mannfólksins og sérstöðu meðal spendýra. Mannfólkið er bernsk (neoteníska) tegund og færð eru rök fyrir því að það sé því eðlislægt að treysta öðrum og sé gott í sé. Það hefur hins vegar af ýmsum ástæðum sínar dökku hliðar. Niðurstaðan er meðal annars sú að mannfólkið sé eins og margar tegundir í einni, aðlhliða og sveigjanleg og það hefur hæfni til að aðlagast og breyta öllum mögulegum vistkerfum. Það skaust fram í fæðukeðjuna í einu vetfangi og hefur nú uppgötvað erfðaefni lífvera, afhjúpað þróunaröflin og ferðast til annars himinhnattar. Í lok bókarinnar er reynt að rýna inn í framtíðarhorfur þessarar tegundar.

Karfan þín

Valmynd