Eignaréttur I

Almenn rit

Eignaréttur I

eftir Karl Axelsson, Víðir Smári Petersen og Þorgeir Örlygsson

2024 · 467 bls.

Veldu snið

14.890 kr.

Til á lager

Um bókina

Eignaréttur I, er hið fyrsta í fyrirhugaðri þriggja binda ritröð höfunda um íslenskan eignarétt. Þetta fyrsta bindi tekur til umfjöllunar reglur sem eru sameiginlegar flestum eignarréttindum og varða grundvallarþætti í íslenskri eignarréttarskipan. Í ritinu er fjallað um ýmsar raunhæfar réttarreglur sem oft reynir á fyrir dómstólum, eins og til dæmis andlag eignarréttar, eignaraðild, eignarform, forkaupsrétt og önnur óbein eignarréttindi, réttarreglur um sérstaka sameign, stofnunarhætti eignarréttinda og nábýlisrétt.
Höfundar eru Þorgeir Örlygsson, Karl Axelsson og Víðir Smári Petersen

Karfan þín

Valmynd