Um bókina
Hvenær var farið að halda upp á 17. júní sem þjóðhátíðardag Íslendinga? Valið var ekki átakanlaust því ýmsir dagar komu til greina eins og kynnt er í bókinni.
Í henni er rakið hvernig 17. júní varð að þjóðhátíðardegi Íslendinga með útihátíðarhöldum í helstu kaupstöðum landsins snemma á 20. öld en það gerðist einkum fyrir tilstilli fjölmennra grasrótarhreyfinga, eins og sjálfstæðis-, íþrótta-, ungmennafélags- og verkalýðshreyfinganna. Margir aðrir lögðu hönd á plóg, eins og til dæmis blöð og tímarit, atvinnurekendur, sem gáfu starfsfólki frí, og bæjarstjórnir sem beittu sér fyrir lokun sölubúða. barna og fullorðinna ár hvert.













