Um bókina
Brennuöldin fjallar um atburði og tíðaranda þeirra tíma þegar orðrómur og “illt rykti” um galdur gat kostað fólk lífið og menn áttu það undir sveitungum sínum, velvilja þeirra eða tortryggni, hvort þeir höfnuðu á bálkestinum sem “sannreyndir galdramenn”. Afdrif þeirra Íslendinga sem bornir voru á bálið, sakaðir um galdraódæði sem og þeirra þúsunda Evrópubúa er hlutu sömu örlög kalla á skýringar.













