Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 400 | 5.690 kr. |
Um bókina
Bertel Thorvaldsen (1770–1844) náði því að verða um skeið dáður sem fremsti myndhöggvari Evrópu.
Hér er rakin viðburðarík saga drengs sem sýndi þegar í bernsku að hann bjó yfir einstæðri listgáfu. Móðir Bertels var jósk en faðir hans skagfirskur myndskeri. Að loknum glæstum námsferli í Kaupmannahöfn bjó Bertel í fjóra áratugi í Róm, háborg lista og menningarlífs þess tíma, og skóp verk sem enn setja svip á torg og byggingar víða um heim. Bókina ritar Helgi Konráðsson á Sauðárkróki og kom hún fyrst út 1944.
Hún er nú endurútgefin með formála eftir Guðna Th. Jóhannesson forseta og eftirmála ítalska listfræðingsins Stefano Grandesso.