Bænabókin okkar

Almenn rit

Bænabókin okkar

Jóna Hrönn Bolladóttir

Veldu snið

6.290 kr.

Til á lager

Um bókina

Jóna Hrönn Bolladóttir prestur hefur valið orð úr Biblíunni og skrifað út frá þeim stuttar hugvekjur eða bænakveikjur og fundið bókarköflum yfirskriftir sem snerta hverja manneskju. Þessi bók er hlaðin lífsreynslu og miðlar sálgæslu á opinskáan en hlýlegan hátt. Hver einasta bæn er hrein þakkarbæn þótt bænarefnin geti verið þung og sár. Þetta er bók fyrir samtímafólk á öllum aldri. Allar 132 bænir bókarinnar eru frumsamdar af hópi fólks sem fenginn var til verksins. Þar er einnig að finna 10 frumsamdar trúarjátningar.

Þemu bókarinnar tala beint inn í samtímann og allir textar eru samdir með almenning í huga. Þemun eru: – Gleði – Gestrisni – Foreldraábyrgð – Endurfæðing – Seigla – Skömm – Fyrirgefning – Reiði – Skilyrðislaus kærleikur – Sorg – Jaðarsetning – Samlíðun – Virðing og vinátta – Hugrekki – Innsæi – Samfélag – Angist – Friður – Ofbeldi – Krossinn – Upprisan – Trúarjátningar – Sæluboðin – Boðorðin 10

Karfan þín

Valmynd