Alls konar íslenska
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2022 | 355 | 4.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2022 | 355 | 4.690 kr. | ||
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Um bókina
Alls konar íslenska: Hundrað þættir um íslenskt mál á 21. öld er safn fjölbreyttra þátta um íslensku eftir Eirík Rögnvaldsson. Umfjöllunarefnin eru margvísleg, allt frá eldheitum „málvillum“ og yfir í umræðu um þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir á 21. öldinni hvað varðar til dæmis viðmið í málrækt, samfélags- og tæknibreytingar og kynjamál og kynhlutleysi í máli. Meginþráðurinn í umfjöllun Eiríks grundvallast þó á gildi tungumálsins í menningu okkar, að tungumálið sé fyrir okkur öll, ekki útvalda, og nauðsyn þess að umræða um málfar og tungumálið sé jákvæð og umburðarlynd.
Alls konar íslenska vekur lesendur til umhugsunar um tungumálið, stöðu þess og framtíð og stuðlar að jákvæðu viðhorfi málnotenda til íslenskunnar.
Eiríkur Rögnvaldsson er prófessor emeritus í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands og einn helstu forvígismanna um íslenska máltækni. Hann hefur verið óþreytandi við að vekja athygli á stöðu íslenskunnar og efla skilning á tilbrigðum og fjölbreytileik tungumálsins og mikilvægi þess í menningu okkar og samskiptum.
1 umsögn um Alls konar íslenska
embla –
„Þetta er afskaplega læsilegt rit og þar er vikið að fjölmörgum álitamálum. Áhugamenn um velferð og viðgang íslensku eiga endilega að lesa bókina því hún getur verið uppspretta röklegrar umræðu um málið og hvernig við getum skilað því til næstu kynslóða. Bókin er í senn ögrandi og upplýsandi og stangast oft á við ríkjandi hefð.“
Sölvi Sveinsson / Morgunblaðið