Aldingarðurinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 288 | 2.065 kr. | ||
Kilja | 2007 | 288 | 990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.690 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2006 | 288 | 2.065 kr. | ||
Kilja | 2007 | 288 | 990 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2018 | App | 1.690 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Ástin og tíminn, tvö sterkustu öflin í mannlegri tilveru, eru meginstefin í þessari seiðmögnuðu bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar sem inniheldur tólf smásögur. Hún fylgir árhringnum, hver frásögn ber nafn eins mánaðanna og fléttast þær þannig saman bæði í efni og byggingu. Þetta er bók um tryggð og svik, hamingju og sorg, lævíslegar grunsemdir og grunsamlegar ímyndanir, ástríðufulla þrá og leik að eldi …
Sjaldan hefur Ólafi Jóhanni tekist eins vel upp og í þessari bók en fyrir hana hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin 2006 í flokki fagurbókmennta.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er um 7,5 klukkustundir að lengd. Hallmar Sigurðsson les.
2 umsagnir um Aldingarðurinn
Elín Pálsdóttir –
„Maður getur ekki hætt að lesa þegar maður er byrjaður … Sögurnar tvinna saman spennu, sorg og tilfinningalíf fólks á meistaralegan máta svo úr verður verk sem hefur alla burði til að geta höfðað til mjög ólíkra lesenda.“
Óttar M. Norðfjörð / DV
Elín Pálsdóttir –
„Snjallar og vandaðar smásögur“
Jón Yngvi Jóhannsson / Kastljósi