
- Innbundin
- Rafbók
Vetrarbókin
Vilborg Davíðsdóttir
frá 4.290 kr.

Forlagshöfundur
11 bækur
Vilborg Davíðsdóttir fæddist á Þingeyri árið 1965. Hún lauk prófi í hagnýtri fjölmiðlun frá Háskóla Íslands árið 1991, BA-prófi í þjóðfræði og ensku 2005 og MA-gráðu í þjóðfræði árið 2011. Hún var blaðamaður, dagskrárgerðarmaður og fréttakona hjá ýmsum fjölmiðlum frá 1985 til 2000 en hefur síðan þá helgað sig ritstörfum. Jafnframt hefur hún kennt þjóðfræði við HÍ og gegnt þar starfi Jónasar Hallgrímssonar við meistaranám í ritlist.
Flestar bækur Vilborgar eru sögulegar skáldsögur sem gerast í fjarlægri fortíð og kvenkyns söguhetjur eru jafnan í forgrunni. Fyrsta sagan sem hún sendi frá sér, Við Urðarbrunn, kom út árið 1993 og framhald hennar, Nornadómur, árið eftir. Fyrir þær hlaut Vilborg verðlaun Íslandsdeildar IBBY og Skólamálaráðs Reykjavíkur. Þær komu síðar út saman undir titlinum Korku saga og hefur sú bók verið notuð við kennslu bæði í grunnskólum og framhaldsskólum allt frá útgáfu. Þrjár skáldsagna Vilborgar hafa verið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna: Hrafninn (2005), Auður (2009), fyrsta bindið í þríleik um landnámskonuna Auði djúpúðgu, og Land næturinnar (2023).
Ástin, drekinn og dauðinn (2025) er sjálfsævisögulegt verk þar sem fjallað er á óvenju opinskáan hátt um missi og sorg en bókina skrifaði Vilborg eftir að hún missti mann sinn í blóma lífsins. Bókin var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Vetrarbókin – í gegnum myrkrið með goðum og vættum (2026) er annað óskáldað verk frá Vilborgu þar sem hún rekur á fjörlegan hátt margvíslegan fróðleik sem tengist vetrinum í þjóðtrú og bókmenntum Íslendinga fyrr og síðar og fléttar inn í frásögnina þræði úr eigin lífi.
Vefsíða Vilborgar er davidsdottir.is
Sýnir 1–11 af 11 bókum

Vilborg Davíðsdóttir
frá 4.290 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
990 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
frá 3.690 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
frá 1.490 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
frá 990 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
990 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
990 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
frá 990 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
frá 990 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
frá 990 kr.

Vilborg Davíðsdóttir
frá 990 kr.