Sóley Dröfn Davíðsdóttir

Forlagshöfundur

4 bækur

Sóley Dröfn Davíðsdóttir

Sóley er fædd í Reykjavík árið 1972 en ólst upp úti í Svíþjóð og hefur auk þess dvalið einhver ár erlendis á fullorðinsárum, meðal annars í Kína, Mexíkó og Frakklandi. Hún tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Hamrahlíð og nam sálfræði við Háskóla Íslands. Hún lauk því námi 2001 og hefur starfað sem sálfræðingur síðan, fyrstu sjö árin við geðsvið LSH. Árið 2008 stofnaði hún Kvíðameðferðarstöðina ásamt stöllu sinni og gegnir þar hlutverki forstöðusálfræðings. Hún hefur sérhæft sig í meðhöndlun kvíðaraskana og sinnir meðal annars einstaklings- og hópmeðferð, kennslu og rannsóknum á því sviði.

Sóley hefur gefið út bækurnar Náðu tökum á kvíða, fælni og áhyggjum (2014), Náðu tökum á félagskvíða (2017), Náðu tökum á þunglyndi (2019) og Náðu tökum á þyngdinni (2021).  Markmiðið með útgáfu bókanna er að bæta aðgengi fólk að sálfræðilegri meðferð. Bækurnar eru byggðar á hugrænni atferlismeðferð sem er ein öflugasta meðferð sem fyrirfinnst við kvíða og þunglyndi. Sóley hefur lokið sérnámi í hugrænni atferlismeðferð og er sérfræðingur í klínískri sálfræði.

Sóley hefur sérstakan áhuga á heimshornaflakki, tungumálum, oíumálun og bókalestri. Hana dreymir um að skrifa skáldsögu.

Sía niðurstöður

Flokkar
Snið
Verð
0 kr.4.000 kr.+

Sýnir 1–4 af 4 bókum

ADHD fullorðinna – Bára Sif Ómarsdóttir og Sóley Dröfn Davíðsdóttir
  • Mjúk spjöld

ADHD fullorðinna

Bára Sif Ómarsdóttir og Sóley Dröfn Davíðsdóttir

3.990 kr.

Karfan þín

Valmynd