Heiða Vigdís Sigfúsdóttir

Forlagshöfundur

2 bækur

Heiða Vigdís Sigfúsdóttir

Heiða Vigdís Sigfúsdóttir (f. 1992) sigraði í handritasamkeppni Forlagsins, Nýjar raddir, árið 2022 með sögu sinni Getnaður. Þetta var fyrsta skáldsaga Heiðu, en hún hafði áður unnið samkeppnina um Jóladagatal Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgar 2021.

Húmor er sterkt einkenni á verkum Heiðu og þá ekki síst spaugilegur vandræðagangur, en sú hlið hennar fær einnig að njóta sín reglulega með grínhópnum Eldklárar og eftirsóttar.
Heiða lauk BA-námi í hagfræði með sagnfræði sem aukafag en nemur nú ritlist við Háskóla Íslands og Universidad del Salvador í Buenos Aires. Um þessar mundir er Heiða búsett í Argentínu þar sem hún vinnur að meistaraverkefni og skrifar pistla fyrir Lestina á Rás 1.

Sía niðurstöður

Flokkar
Snið
Verð
0 kr.5.000 kr.+

Sýnir 1–2 af 2 bókum

Getnaður – Heiða Vigdís Sigfúsdóttir
  • Kilja
  • Rafbók
  • Hljóðbók

Getnaður

Heiða Vigdís Sigfúsdóttir

frá 1.990 kr.

Karfan þín

Valmynd