Árni Heimir Ingólfsson

Forlagshöfundur

7 bækur

Árni Heimir Ingólfsson

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur er fæddur árið 1973. Rannsóknir hans á íslenskri tónlistarsögu frá miðöldum fram á 20. öldina hafa getið af sér fjölda greina og fyrirlestra, en einnig bækur og geislaplötur sem hlotið hafa tilnefningar og verðlaun.

Bók hans Jón Leifs – Líf í tónum var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki fræðirita 2009 og Saga tónlistarinnar – Tónlist á Vesturlöndum frá miðöldum til nútímans hlaut sömu tilnefningu 2016. Geisladiskarnir Melódía (2007) og Hymnodia sacra (2010) með tónlist úr íslenskum nótnahandritum fyrri alda hlutu báðir Íslensku tónlistarverðlaunin í flokki sígildrar tónlistar.

Árni Heimir er með BM-próf í píanóleik og tónlistarsögu frá Oberlin-tónlistarháskólanum í Ohio og doktorsgráðu í tónlistarfræði frá Harvard-háskóla. Hann hefur kennt við Listaháskóla Íslands, verið tónlistarstjóri og listrænn ráðgjafi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og kynnt íslenska tónlistarsögu víða um heim.

Sía niðurstöður

Flokkar
Snið
Verð
0 kr.10.000 kr.+

Sýnir 1–7 af 7 bókum

Kveðið í bjargi – Árni Heimir Ingólfsson, Páll Valsson og Svanhildur Óskarsdóttir
  • Innbundin

Kveðið í bjargi

Árni Heimir Ingólfsson, Páll Valsson og Svanhildur Óskarsdóttir

8.990 kr.

Karfan þín

Valmynd