Vesturfarasögurnar

Vesturfarasögurnar saman í kilju

Vesturfarasögur Böðvars Guðmundssonar, Híbýli vindanna og Lífsins tré, eiga sérstakan stað í hjörtum Íslendinga og eru einar vinsælustu og mest metnu bókmenntir síðari tíma. Báðar voru þær tilnefndar til íslensku bókmenntaverðlaunanna árin sem þær komu út og hlaut Lífsins tré verðlaunin árið 1996. Nú eru bækurnar tvær komnar út á ný, saman í einni kilju.

Í þeim rekur Böðvar fjölskyldusögu vesturfarans Ólafs fíólíns og veitir lesendum einstaka innsýn í líf Íslendinga sem fluttust til Vesturheims á seinni hluta 19. aldar; störf þeirra og kjör, vonir og þrár. Persónurnar eru margar og litríkar, og saga þeirra er skrifuð af næmum skilningi og fölskvalausri samúð. Að baki frásögunum liggur umfangsmikil heimildavinna og Íslandssagan lifnar við í þessu magnaða verki.

INNskráning

Nýskráning