Lemondrengir

Verum fersk í janúar!

Undir lok síðustu viku kom út Djúsbók Lemon en hún er stútfull af sælkerasöfum og þeytingum, drykkjum sem bjarga deginum.

Í Djúsbók Lemon er að finna fjörutíu sælkerasafa og þeytinga úr besta fáanlega hráefni, einfalda, frísklega og stútfulla af hollefnum úr ávöxtum, grænmeti, skyri og náttúrulegu kryddi og bragðefnum. Drekktu þá á morgnana eða hvenær sem þú þarft á hollri orku og hressingu að halda og dansaðu skælbrosandi út í lífið!

Höfundar bókarinnar eru þeir Jón Arnar Guðbrandsson og Jón Gunnar Geirdal, eigendur Lemon, en þeir efna til heljarinnar veislu í tilefni af útgáfunni á Lemon, Suðurlandsbraut 4, fimmtudaginn 8. janúar kl. 16.

Dansaðu & djúsaðu með okkur! Boðið upp á sælkeradjúsa úr bókinni og bókin til sölu á staðnum.

Smelltu hér til þess að skoða uppskrift úr bókinni.

INNskráning

Nýskráning