Yfir hálfan hnöttinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Kilja | 2021 | 303 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.290 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Kilja | 2021 | 303 | 3.490 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.290 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Yfir hálfan hnöttinn er skálduð ferðasaga eftir Ásu Marin sem áður hefur meðal annars sent frá sér Veg vindsins um pílagrímsgöngu eftir Jakobsveginum. Hér fer saman spennandi saga og framandi umhverfi þar sem fólkið er áhugavert, náttúran fögur og maturinn gómsætur.
Júlía situr í flugvél á leið til Víetnam. Tók skyndiákvörðun um að elta hugboð. Tilfinningu. Vonandi verður tekið á móti henni með bónorði. Eða var Ari nokkuð að segja henni upp með miðanum sem hann skildi eftir á eldhúsbekknum rétt fyrir tíu ára sambandsafmælið?
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 11 mínútur að lengd. Sigríður Láretta Jónsdóttir les.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
2 umsagnir um Yfir hálfan hnöttinn
gudnord –
„Heilt yfir er Yfir hálfan hnöttinn létt og skemmtileg saga … tilvalin fyrir þá sem vilja líta út fyrir landsteinana án þess að leggja á sig það erfiði sem ferðalög eru gjarnan á tímum kórónuveiru.“
Ragnhildur Þrastardóttir / Morgunblaðið
embla –
„Ég gleymdi mér algjörlega við lesturinn og í ferðalaginu til Víetnam. […] Yfir hálfan hnöttinn er fullkominn sumarsmellur!“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn