Vígroði
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 264 | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 264 | 1.990 kr. | ||
Rafbók | 2012 | 990 kr. |
Um bókina
Auður djúpúðga elur upp son sinn á eigin jörð á Katanesi. Hún hefur haldið sig fjarri Suðureyjum frá því að leiðir hennar og Ólafs hvíta Dyflinnarkonungs skildu af ótta við að Ketill flatnefur, faðir hennar, gefi hana manni á ný.
Að veturnóttum 865 kemur hún þó í föðurhús, til brúðkaups bróður síns og dóttur Ingólfs Arnarsonar. Þar spá dísirnar því að vígroða muni brátt slá á víkinga í Vesturhafi. Og víst horfir ófriðvænlega á norðanverðum Bretlandseyjum þar sem innfæddir veita norrænum mönnum æ meiri mótspyrnu og Orkneyjajarl ásælist aukin völd. Þá ræðst Dyflinnarkonungur inn í Péttland, öllum að óvörum, og leiðir þeirra Auðar liggja saman að nýju …
Vígroði er framhald af skáldsögunni Auður sem kom út 2009, naut geysilegra vinsælda og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
4 umsagnir um Vígroði
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„… grípandi og spennandi …“
Kolfinna Jónatansdóttir / Spássían
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Styrkur sögunnar er hin breiða samfélagslýsing og ljóst er sem fyrr að Vilborg hefur unnið heimildavinnuna vel. … Hún byggir á upprunasögu okkar því að flestir eru Íslendingar komnir af þeim persónum sem þarna er fjallað um ef eitthvað er að marka íslensku fornritin.“
Skafti Þ. Halldórsson / Morgunblaðið
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Bókin er feiknavel skrifuð, söguþráðurinn áhugaverður og lýsingar allar þannig að maður sér persónur og atburði ljóslifandi fyrir sér. Ef eitthvað er fannst mér hún sterkari og áhugaverðari en Auður, kannski af því að persónan Auður er nú orðin eldri, reyndari og þroskaðri en stúlkan í fyrri bókinni.“
Eyja M. Brynjarsdóttir / Druslubækur og doðrantar
Kristrún Heiða Hauksdóttir –
„Bókin er afskaplega vel unnin og liggja augljóslega miklar rannsóknir og mikil vinna að baki. … Vandlega unnin og vel skrifuð saga um aðdraganda þess að Auður djúpúðga nam land á Íslandi.“
Friðrika Benónýsdóttir / Fréttablaðið