Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Vestfirðingar til sjós og lands – 3.bók
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 112 | 2.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 112 | 2.690 kr. |
Um bókina
Ritröð þessari er ætlað að vekja áhuga á Vestfjörðum og Vestfirðingum almennt fyrr og síðar, í gamni og alvöru. Til þess var Vestfirska forlagið einmitt stofnað. Kannski bara af einhverri hugsjón, en ekki til að græða peninga.
Í bréfi til okkar frá forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrir nokkrum árum, segir m. a. svo:
„Alúð þín við sögu fólks við Dýrafjörð og víðar á Vestfjörðum er mikil og merk. Við sem unnum þessum slóðum erum full þakklætis og virðingar.“
Þessi fallegu orð mega hundruð höfunda og ýmsir aðrir sem lagt hafa hönd á plóg hjá Vestfirska forlaginu, einnig taka til sín.