Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Varðinn í vestri
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2011 | 145 | 1.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2011 | 145 | 1.690 kr. |
Um bókina
Árið 1911 lögðu Vestur-Íslendingar frændum og vinum á Íslandi lið í almennri fjársöfnun. Tilgangurinn með henni var að heiðra Jón Sigurðsson á hundrað ára fæðingarafmæli hans. Framlagið í Vesturheimi var svo myndarlegt að afráðið var að gera afsteypu af styttunni sem Einar Jónsson hafði gert og senda vestur um haf. Minnisvarðinn prýðir nú þinghúsgarðinn í Winnipeg og er sérstakt sameiningartákn. Vesturfarar og afkomendur þeirra í Norður-Ameríku stóðu með þessari myndarlegu söfnun að eftirtektarverðu þjóðræknisátaki sem enn lifir vestan hafs. Jónas Þór sagnfræðingur rannsakaði tildrögin að þessu framtaki Vestur-Íslendinga og rekur sögu söfnunarinnar og hvaða áhrif hún hafði á vesturíslenskt samfélag.