Þriðji maðurinn: Valdamiklir menn #2
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 1.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 1.190 kr. |
Um bókina
Útlitið er heldur dökkt fyrir Þórhall, rannsóknarlögreglumann hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Morðmálið sem hann er að rannsaka og virtist vera að leysast tekur skyndilega nýja stefnu þar sem alþjóðlegar glæpaklíkur og spilling á æðstu stöðum virðist koma við sögu. Þórhallur hefur orðið vitni að öðru morði og raunar sloppið naumlega sjálfur.
Þótt hann sé særður ákveður hann að slökkva á farsímanum og halda einn síns liðs burt úr höfuðborginni, norður á bóginn. Fjarvera Þórhalls vekur furðu í höfuðstöðvum rannsóknarlögreglunnar, Brynhildi samstarfskonu hans grunar að ekki sé allt með felldu en hverjum er hægt að treysta?.
Þriðji maðurinn eftir Jón Pálsson tekur upp þráðinn þar sem Þriðja málinu, fyrstu bókinni um Valdamikla menn, sleppir. Hér berst æsispennandi atburðarásin meðal annars til Dalvíkur og sem fyrr eru það valdamiklir menn, bæði í undirheimum og efri lögum samfélagsins sem halda um þræðina.