Útkall – Þrekvirki í Djúpinu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 224 | 5.990 kr. | ||
Geisladiskur | 2018 | Mp3 | 2.590 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 224 | 5.990 kr. | ||
Geisladiskur | 2018 | Mp3 | 2.590 kr. |
Um bókina
Eitt mesta björgunarafrek síðustu aldar. Þrjátíu og fjórir skipbrotsmenn berjast upp á líf og dauða í flaki togarans Egils rauða sem hefur strandað í foráttubrimi undir hrikalegu hamrastáli Grænuhlíðar í Ísafjarðardjúpi.
Djarfar áhafnir lítilla báta reyna við illan leik að nálgast myrkvaðan strandstaðinn, útilokað er að koma til bjargar – nema að hætta eigin lífi.
Lagt er í ofurmannlega sjö kílómetra þrautagöngu með þungar byrðar í stórgrýti, skriðum og þreifandi stórhríð. Hér er fjallað um þrjá hildarleiki árin 1955, 1956 og 1957 sem allir tengjast.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.
Hljóðbókin er um 6 klukkustundir að lengd. Höfundur les.