Útkall – Sonur þinn er á lífi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 221 | 4.035 kr. | ||
Geisladiskur | 2012 | Mp3 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 221 | 4.035 kr. | ||
Geisladiskur | 2012 | Mp3 | 990 kr. |
Um bókina
Snjóflóðin í Neskaupstað 1974 eru einn sögulegasti atburður síðustu aldar. Í þessari Útkallsbók segja íbúarnir frá því hvað raunverulega gerðist í magnþrunginni atburðarás um jólaleytið.
Piltur lokast inni í þröngu svartholi í 20 klukkustundir og veit ekki hvar hann er. Hann er talinn af. Vörubílstjóri berst langt út í sjó með flóðinu og fær hjartaáfall á hafsbotni. Maður sem missir eiginkonu og tvö börn lýsir ástandinu og hjúkrunarkona greinir frá ótrúlegum atburðum á sjúkrahúsinu. Starfsmaður Frystishússins, sem var nær dauða en lífi, segir frá komu sinni til himnaríkis.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.