Útkall – Í hamfarasjó
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 213 | 5.990 kr. | ||
Geisladiskur | 2015 | Mp3 | 2.390 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2015 | 213 | 5.990 kr. | ||
Geisladiskur | 2015 | Mp3 | 2.390 kr. |
Um bókina
Nýfundnalandsmið í febrúar 1959. Á þriðja hundrað íslenskir togarasjómenn horfast í augu við dauðann.
Eitthvert allra versta sjóveður sem Íslendingar hafa lent í á öldinni. Togarans Júlí frá Hafnarfirði er saknað með 30 mönnum. Fulllestaður liggur Þorkell máni frá Reykjavík eins og borgarísjaki á hliðinni. Öldurnar eru á við átta hæða hús. Hér er barist upp á líf og dauða við að berja ís.
Hraði, spenna og næmi fyrir viðmælendum sem segja frá sönnum atburðum hafa þótt aðalsmerki Óttars Sveinssonar, höfundar Útkallsbókanna sem setið hafa í efstu sætum metsölulistanna síðastliðin 21 ár.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.
1 umsögn um Útkall – Í hamfarasjó
Elín Edda Pálsdóttir –
„Óttar kann að byggja upp spennu án þess að beita fyrir sig ódýrum stílbrögðum“.
/ Morgunblaðið