Útkall – Á ögurstundu

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 234 5.990 kr.
spinner

Útkall – Á ögurstundu

5.990 kr.

Útkall - á ögurstundu
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2020 234 5.990 kr.
spinner

Um bókina

Þegar jörð skelfur, eldstrókar rísa með hvellum og drunum og fimm þúsund manns eru í stórhættu við upphaf eldgossins á Heimaey siglir Gjafar VE 300, lítill loðnubátur, út úr Friðarhöfn með 430 manns. Þrengslin um borð eru gríðarleg. Þremur vikum síðar lendir áhöfnin í mannskaðaveðri við leit að fimm Íslendingum og fimm Færeyingum í gúmbjörgunarbátum sem
saknað er á miðju Atlantshafi. Réttum mánuði eftir að eldgosið hófst strandar Gjafar í foráttubrimi fyrir utan Grindavík. Skipverjar berjast upp á líf og dauða meðan hugrakkir félagar
í Björgunarsveitinni Þorbirni reyna að bjarga þeim.

Hinn farsæli útgerðarmaður og vélstjóri Theodór Ólafsson lendir þarna í sínum þriðja skipskaða. Skipverjar og björgunarmenn segja frá hetjulegri baráttu. Árið 1984 lenda Theodór og 14
manna áhöfn hans á Sæbjörgu VE 56 aftur í stórkostlegri lífshættu þegar hún verður vélarvana í óveðri við Hornafjörð. Báturinn nálgast hratt ógnarlegt brimið í klettunum og stórgrýtinu á
Stokksnesi og Hafnartanga áður en hann strandar. Björgunarsveitarmenn á Höfn lýsa ótta sínum um að öll áhöfnin kynni að farast og stórkostlegri framgöngu við björgunarstörf

Útkallsbækur Óttars Sveinssonar hafa á hverju ári frá 1994 verið eitthvert vinsælasta lesefni Íslendinga og þær hafa verið gefnar út víða um heim.

Í þessum hörkuspennandi bókum gleyma lesendur sér í frásögnum þar sem höfundurinn og söguhetjurnar sjálfar lýsa sönnum atburðum úr íslenskum raunveruleika.

Tengdar bækur

7.290 kr.
6.290 kr.
Útkall - Tifandi tímasprengja
2.990 kr.5.990 kr.
Útkall – Þrekvirki í Djúpinu
2.590 kr.5.990 kr.
Útkall - Reiðarslag í Eyjum
2.590 kr.5.990 kr.
Útkall - Kraftaverk undir Jökli
2.590 kr.5.590 kr.
Útkall - Í hamfarasjó
2.390 kr.5.990 kr.
2.390 kr.5.280 kr.
990 kr.5.385 kr.
990 kr.4.035 kr.
990 kr.
990 kr.
3.390 kr.
5.290 kr.
2.090 kr.
6.390 kr.
borghinnadauðu.end.indd
4.390 kr.6.890 kr.
14.390 kr.
3.590 kr.
1.890 kr.

INNskráning

Nýskráning