Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Úr húsi afa míns
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 204 | 2.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2013 | 204 | 2.190 kr. |
Um bókina
Úr húsi afa míns er þriðja og síðasta bókin í marglofuðum þríleik Finnboga Hermannssonar um bernskubrek eftirstríðsáranna í Reykjavík. Sögumaður er að vaxa úr grasi. Á sama tíma er hið unga lýðveldi Íslands að slíta barnsskónum. Bærinn Reykjavík er smám saman að verða að borg, með tilheyrandi vaxtarverkjum. Og nú stendur sögumaður á tímamótum því að framtíðin er farin að knýja dyra. Eftir ferminguna þurfa ungir menn að marka lífi sínu farveg. Þá er gott að eiga athvarf frá landsprófum og loftborum í sveitinni austur í Flóa, þar sem enn eru stundaðir fornir búskaparhættir.