Ullin brók og hangið kjöt
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 91 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 91 | 2.990 kr. |
Um bókina
„Ljóðið er eins og tíminn og tíminn er eilífur. Sumt er bara skrifað fyrir augnablikið, en augnablikið er hluti af tímanum, augnablikið er hluti af ævi hvers og eins.“
Kristján Guðlaugsson fæddist á Akranesi 1949. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1968 og dvaldi næstu ár í Svíþjóð við nám í kínversku og sagnfræði. Heimkominn kenndi hann innflytjendum íslensku við Námsflokka Reykjavíkur. Hann var formaður Kínversk-íslenska menningarfélagsins um árabil og heimsótti Kína mörgum sinnum á þeim árum. Var líka aðalritari Kommúnistaflokks Íslands (ml) meðan sá flokkur starfaði.
Eftir ársdvöl í Kína hvarf hann til Noregs þar sem hann lauk námi í blaðamennsku. Hann bjó og starfaði nær aldarfjórðung í Stavanger sem blaðamaður og ritstjórnarfulltrúi dagblaðsins Rogalands Avis. Kenndi líka við háskólann í Stavanger, norsku, kínversku og kínverska sögu. Sem blaðamaður fór hann meðal annars til Króatíu á tímum Balkanstríðsins og til Kúrdahéraðanna í Tyrklandi og Írak á dögum Írakstríðsins.
Ljóðin sem hér birtast eru endurminningar frá öllum þessum árum.