Ferðin á heimsenda 2: Týnda barnið
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.690 kr. | Setja í körfu | |
Innbundin | 2020 | 188 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Ferðin á heimsenda 2: Týnda barnið
1.490 kr. – 4.290 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2023 | App | 1.690 kr. | Setja í körfu | |
Innbundin | 2020 | 188 | 4.290 kr. | ||
Rafbók | 2020 | 1.490 kr. |
Um bókina
Húgó og Alex eru ekki búin að gefast upp á því að finna vorið þótt stundum gangi allt á afturfótunum. Nú eru þau komin á nýjar slóðir þar sem þau kynnast meðal annars gömlum karli með unglingaveiki, risaskordýrum og dularfullri konu sem býr yfir leyndarmáli úr fortíð Húgós.
Týnda barnið er feikilega fjörug og spennandi saga ætluð átta til tólf ára lesendum. Þetta er önnur bókin af þremur um hættuför félaganna til bjargar heimabyggð sinni.
Sigrún Elíasdóttir býr í Borgarfirði. Þar hefur hún sér til aðstoðar tvo mennska skrímslaráðgjafa sem segja henni líka hvenær hún er ekki nógu fyndin. Sigmundur Breiðfjörð er þriðji skrímslasérfræðingurinn og blæs lífi í allar furðuverurnar með blýöntum sínum og pennum.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 5 klukkustundir og 1 mínúta að lengd. Andrea Ösp Karlsdóttir les.
1 umsögn um Ferðin á heimsenda 2: Týnda barnið
embla –
„Heilt yfir er bókin fyndin og spennandi. Húgó er álappalegur, huglaus sláni sem auðvelt er að hlæja að. Svolítið eins og Guffi, bara með minni eyru. Alex er andstæðan: ung kona með stefnu, dug og þor. Það verður forvitnilegt að sjá hvað Sigrún hefur uppi í erminni fyrir næstu bók – þegar Húgó og Alex hafa náð að safna saman öllum styttunum og sameina krafta þeirra til að bjarga heiminum frá glötun.“
Katrín Lilja / Lestrarklefinn