Þorp verður til á Flateyri – 2. hefti
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 118 | 1.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 118 | 1.290 kr. |
Um bókina
Flateyri við Önundarfjörð varð til sem þorp á síðari hluta 19. aldar. Eins og önnur þorp við sjávarsíðuna allt í kringum landið voru fiskveiðar og vinnsla aflans sá atvinnugrunnur sem gerði búsetu á mölinni eftirsóknarverða.
Í þessu verki er grundvöllurinn fréttaefni úr sendibréfum sem rituð voru á Flateyri um aldamótin 1900 og eru þau hluti tveggja bréfasafna sem hafa nú um 100 ára skeið legið þar í ferðakofforti og kommóðuskúffu.
Í verkinu kennir ýmissa grasa úr sögu þorpsins sem mörgum mun þykja forvitnilegt að skoða. Hér er fjallað um mannlíf og menningu á Flateyri. Einnig um lækningar, hjúkrun og þróun heilbrigðisþjónustu í byggðarlögum vestra.
Þetta er önnur bókin af þremur væntanlegum.
Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir tók saman.
Teikningar: Freydís Kristjánsdóttir