Þögult óp
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 384 | 1.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2017 | 384 | 1.690 kr. |
Um bókina
Aðdáendur góðra spennubóka verða ekki sviknir af þessari hröðu, æsispennandi og margslungnu sögu. Bækur Angelu Marsons um lögreglukonuna Kim Stone hafa slegið í gegn í Bretlandi og hafa komið út á meira en 20 tungumálum um allan heim. Nú er Kim Stone komin til Íslands – og hún er komin til að vera.
Jafnvel myrkustu leyndarmál liggja ekki grafin að eilífu … Fimm manneskjur standa yfir grunnri gröf. Þær höfðu allar skipst á að grafa. Gröf fyrir fullorðinn hefði tekið lengri tíma. Saklaust líf hafði verið tekið en fólkið hafði gert með sér samning. Leyndarmál þeirra skyldu grafin, bundin í blóði.
Mörgum árum síðar finnst skólastýra myrt; hið fyrsta í röð hrottalegra morða í Svörtulöndum. Þegar mannabein finnast hjá fyrrum upptökuheimili fara gömul leyndarmál að koma í ljós. Rannsóknarlögreglan Kim Stone áttar sig fljótlega á því að hún er á höttunum eftir sjúkum einstaklingi sem á áratuga langa morðsögu.
Kim er í kapphlaupi við tímann um að ná morðingjanum því að líkunum fjölgar hratt. Getur hún kveðið niður draugana úr sinni eigin fortíð og handsamað morðingjann áður en það verður um seinan?