Þín eigin hrollvekja
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 283 | 2.990 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 283 | 2.990 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Þín eigin hrollvekja er þriðja bókin í Þín eigin-bókaflokknum sem hefur hlotið bæði Bókaverðlaun barnanna og Bóksalaverðlaunin.
Þín eigin hrollvekja er öðruvísi en aðrar bækur því hér ert þú söguhetjan og ræður ferðinni. Sögusviðið er dimmt og drungalegt kvöld, stútfullt af skrímslum og óvættum. Þú getur rekist á vampírur og varúlfa, uppvakninga og illa anda, brjálaðar brúður og tryllta trúða – allt eftir því hvað þú velur.
Yfir fjörutíu ólíkir endar. Sögulok spanna allt frá eilífri hamingju til skyndilegs bana. Hryllilega góð skemmtun fyrir alla krakka.
Ævar Þór Benediktsson hefur sent frá sér fjölmargar vinsælar barnabækur og staðið fyrir gríðarvel heppnuðum lestrarátökum fyrir grunnskólabörn. Nýjasta bók hans, Vélmennaárásin, var vinsælasta barnabók sumarsins 2016. Myndir gerir Evana Kisa.
Ef þú þorir geturðu farið á heimasíðuna www.harmaadhefna.is. Hún er til í alvörunni. Farðu samt varlega …
3 umsagnir um Þín eigin hrollvekja
Árni Þór –
„Sögurnar eru skemmtilegar … Alls ekki hefðbundin bók en það gerir hana einstaka.“
Vilhjálmur A. Kjartansson / Morgunblaðið
Árni Þór –
„Þrátt fyrir ýmsan hrylling er stíllinn léttur og hraður, það er aldrei lognmolla í sögunni og má segja að sé nánast stöðugur hasar óháð því hvaða söguþráður er valinn … Þín eigin hrollvekja er hryllingssaga með öllu sem til þarf … spennandi og skemmtileg …“
María Bjarkadóttir / Bókmenntir.is
Árni Þór –
„… leiðirnar til að lesa söguna eru fjölmargar og spennandi … Gaman væri fyrir foreldra að lesa bókina fyrir börnin sín því lesturinn gæti þannig orðið líflegur og skemmtilegur og skapað skemmtilegar umræður. Ég mæli hiklaust með henni í jólapakkann …“
Hekla Sól, 14 ára / DV