Þegar kona brotnar – og leiðin út í lífið á ný
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 285 | 2.190 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 2.890 kr. |
Þegar kona brotnar – og leiðin út í lífið á ný
2.190 kr. – 2.890 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 285 | 2.190 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 2.890 kr. |
Um bókina
Íslenskar konur virðast geta axlað mikla ábyrgð og þolað mikið álag – en hvað gerist ef áreynslan verður þeim um megn?
Hér eru sagðar sögur kvenna sem kiknuðu undan álaginu en risu aftur upp og standa hnarreistar eftir; einlægar og lærdómsríkar sögur sigurvegara. En hvers vegna buguðust þær? Hvað varð þeim til bjargar? Hver er leiðin til baka eftir brotlendingu vegna kulnunar?
Í bókinni er einnig fjallað um konur fyrri tíma, hvernig þær brugðust við örmögnun, og rætt við sálfræðing um hvað gerist þegar kona brotnar og hver bjargráð hennar eru.
Sirrý hefur fengist við fjölmiðlun af öllu tagi í mörg ár, auk þess að kenna við háskóla, hefur haldið fjölda námskeiða og skrifað bækur um hvernig hægt er að auka lífsgæði sín og ná góðum árangri. Bókin er gefin út í samvinnu við VIRK – starfsendurhæfingarsjóð.