Þættir úr sögu lyfjafræðinnar
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 334 | 7.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 334 | 7.990 kr. |
Um bókina
Þættir úr sögu lyfjafræðinnar á Íslandi frá 1760 rekur sögu lyfjagerðar og lyfsölu hér á landi í tvær og hálfa öld, eða allt frá því að fyrsta apótekið var stofnað í Nesi. Einnig er fjallað um lyfjafræðimenntun og þróun hennar á Íslandi, sem og félagsmál lyfjafræðinga og stofnun Lyfjafræðisafnsins.
Bókin, sem er samstarfsverkefni Lyfjafræðingafélags Íslands, Háskóla Íslands og Lyfjafræðisafnsins, er vandað yfirlitsrit um þróun greinarinnar og veitir einstaka innsýn í fortíðina. Byggt er á traustri heimildavinnu og fjölda viðtala við eldri lyfjafræðinga sem hafa frá mörgu fróðlegu og skemmtilegu að segja af langri starfsævi.
Þetta rit er mikill fengur fyrir íslenska lyfjafræðinga og allt áhugafólk um heilbrigðis- og samfélagssögu. Fjöldi mynda prýðir bókina.
Hilma Gunnarsdóttir er með meistaragráðu í sagn- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt ýmsum ritstörfum og annaðist ásamt Sigurði Gylfa Magnússyni útgáfu á dagbókum Elku Björnsdóttur í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar árið 2012. Hilma starfar sem sérfræðingur á Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni.
1 umsögn um Þættir úr sögu lyfjafræðinnar
embla –
„Þættir úr sögu lyfjafræðinnar á Íslandi frá 1760 er vandað yfirlitsrit íslenskrar lyfjasölu og lyfjafræði allt frá því að fyrsta apótekið var stofnað í Nesi. Einnig er innlendum félagsmálum lyfjafræðinga og menntun þeirra gerð góð skil. Bókin er listilega skrifuð þar sem vönduð sagnfræðileg heimildavinna um þróun greinarinnar er sett í bráðskemmtilegt samhengi við ríkjandi tíðaranda svo lesandinn líður í gegnum frásögnina eins og spennandi reyfara sem erfitt er að leggja frá sér. Þetta rit má ekkert áhugafólk um íslenska heilbrigðis- og samfélagssögu láta framhjá sér fara.“
Umsögn dómnefndar / Fjöruverðlaunin