Stafræn ljósmyndun – skref fyrir skref
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 360 | 6.790 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 360 | 6.790 kr. |
Um bókina
Hugmyndarík handbók fyrir alla sem vilja ná góðum tökum á ljósmyndun, hvort sem þeir eru að stíga fyrstu skrefin eða eru reyndir myndasmiðir. Í bókinni er að finna hagnýtar leiðbeiningar og myndræn framsetning hjálpa þér að ná tökum á helstu aðferðum og veita þér innblástur til að móta þinn eigin stíl.
Fjallað er um allar helstu nýjungar í stafrænni ljósmyndun, þar á meðal við myndvinnslu, kvikmyndatöku og eftirvinnslu hreyfimynda.
Höfundurinn, Tom Ang, er margverðlaunaður ljósmyndari, sjónvarpsþáttastjórnandi og metsöluhöfundur. Í bókinni eru birtar ríflega 1000 ljósmyndir eftir hann.
Stórfróðlegt uppflettirit sem þú leitar í aftur og aftur!
Hagnýt og ítarleg handbók um ljósmyndun og myndvinnslu fyrir byrjendur og lengra komna.
„Bókin Stafræn ljósmyndun – skref fyrir skref er yfirgripsmikið uppflettirit sem fjallar um fjölmarga þætti ljósmyndunar og hefur alla burði til að nýtast áhugasömum vel.“
Sigtryggur Ari Jóhannsson / DV
„Þeir sem hafa áhuga á ljósmyndun verða vitanlega að eiga bók við hæfi. Stafræn ljósmyndun skref fyrir skref er slík bók.”
Kolbrún Bergþórsdóttir / Morgunblaðið