Skúli fógeti: Faðir Reykjavíkur – saga frá átjándu öld
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 256 | 5.990 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Skúli fógeti: Faðir Reykjavíkur – saga frá átjándu öld
990 kr. – 5.990 kr.
Bæta á óskalistaEr á óskalista Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2018 | 256 | 5.990 kr. | ||
Rafbók | 2018 | 990 kr. |
Um bókina
Honum tókst að verða eins konar hetja í huga píndrar alþýðu. Dreki og djöfull var hann líka, það var innifalið í starfi rukkara konungs.
Skúli Magnússon, faðir Reykjavíkur, varð fyrstur Íslendinga fógeti landsmanna. Með það afl í farteskinu tókst honum að flytja vísi iðnbyltingarinnar til Íslands með stofnun Innréttinganna, þar sem hann var helsti drifkrafturinn.
En Skúli átti sér margar hliðar: hann var búðarstrákur, lífsglaður Hafnarstúdent, kornungur framagjarn embættismaður, kvennagull og svallari, sýslumaður Skagfirðinga og baráttumaður gegn valdi einokunarkaupmanna, áhrifamestur Íslendinga um hálfrar aldar skeið og í nánu vinfengi við valdamenn í Kaupmannahöfn – og lífsþreytt gamalmenni sem galt áður en lauk landskuldina af Viðey til fulls og endaði ævina þar í skjóli andstæðinga sinna. Allar þessar hliðar Skúla sýnir Þórunn Jarla Valdimarsdóttir hér á sinn einstaka hátt og lýsir um leið samferðafólki hans og samtíð af innlifun.
Skúli fógeti er tuttugasta og fjórða bók höfundar. Þórunn hefur sent frá sér skáldsögur, ljóð og bækur um ýmis sagnfræðileg efni, æviminningar og fleira, meðal annars ævisögur Snorra á Húsafelli og Matthíasar Jochumssonar. Verk hennar hafa hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar.
Hér má finna viðauka með heimildaskrá og ítarefni.
4 umsagnir um Skúli fógeti: Faðir Reykjavíkur – saga frá átjándu öld
Arnar Tómas –
„Skúli fógeti er bráðskemmtileg bók og grípur lesandann.“
Sölvi Sveinsson
Arnar Tómas –
„Vel skrifuð… glitrar á fallegar setningar úti um allt. “
Svavar Gestsson
Arnar Tómas –
„Skúli fógeti er hörkugóð bók og eiginlega eini gallinn að hún hafi ekki verið hundrað síðum lengri.“
Stefán Pálsson / Viljinn
Arnar Tómas –
„Þetta er frábær bók – ef ég væri enn að kenna myndi ég ráðleggja nemendum að lesa hana til að fá tilfinningu fyrir tíðarandanum.“
Anna Agnarsdóttir