PERCY JACKSON er alveg að takast að klára fyrsta heila skólaárið sitt. Sjötti bekkurinn hefur verið óvenju rólegur og ekki eitt einasta skrímsli hefur stigið fæti inn á grunnskólalóðina í New York. En þegar sakleysislegur skotboltaleikur á milli Percy og bekkjarfélaganna breytist í dauðastríð á móti ljótu gengi af mannæturisum verða hlutirnir . . . tja, ljótir. Vinkona hans Percy, Annabeth, birtist óvænt með slæmar fréttir: Einhver hefur eitrað tré Þalíu og veikt galdralandamærin sem vernda Blendingabúðirnar. Ef ekki tekst að finna lækningu verður búðunum gjöreytt! Ekki nóg með það. Undanfarið hefur Percy dreymt drauma um besta vin sinn Grover þar sem hann situr fastur í helli Kýklópa. Það skrítnasta við draumana er að Grover er klæddur í brúðarkjól og er að fara að gifta sig. Í þessari stórskemmtilegu og fyndnu sögu um hann Percy Jackson verður hann að halda til Skrímslahafsins ásamt félögum sínum til að bjarga Blendingabúðunum.