Síðasta ástarjátningin

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 240 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2016 990 kr.
spinner

Síðasta ástarjátningin

990 kr.3.490 kr.

Sidasta astarjatningin
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2016 240 3.490 kr.
spinner
Rafbók 2016 990 kr.
spinner

Um bókina

Við Kristín urðum samferða heim af mótmælunum.
Þögðum upp Tjarnargötu.
„[Eitthvað um blik stjarnanna og myrkrið á milli þeirra],“ sagði Kristín.
„[Eitthvað stolið um undrið sem sundrar stjörnunum],“ sagði ég.
Við kysstumst.

Ungur maður flytur til Reykjavíkur og verður þátttakandi í óvenjulegu verkefni æskuvinar síns. Á sama tíma fellur hann fyrir Kristínu. Tilveran er skáldleg, hvert andartak ort.

Síðasta ástarjátningin er allt í senn falleg, fyndin og spennandi skáldsaga um ástina, listina og lífið.

Dagur Hjartarson hefur áður sent frá sér ljóð og sögur, hlotið Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Nýræktarstyrk Miðstöðvar íslenskra bókmennta. Með þessari skáldsögu skipar hann sér á bekk með áhugaverðustu höfundum þjóðarinnar.

6 umsagnir um Síðasta ástarjátningin

  1. Árni Þór

    „Síðasta ástarjátningin er kannski í grunninn ástarsaga en ástarsagan er þó lítið annað en striginn þar sem hvert orð er pensilrák, hver setning litbrigði og hver málsgrein birtir okkur brot af margbrotnu ljóðrænu listaverki Dags Hjartarsonar. Maður dáist að myndmálinu … Síðasta Ástarjátningin er falleg skáldsaga um ástina, pólitík og Davíð Odsson.“
    Svanhildur Sif Halldórsdóttir / Hugrás

  2. Árni Þór

    „Þetta er hugljúf saga en ekki öll þar sem hún er séð. Í henni eru ansi djúpar pælingar sem gaman er að, s.s. um umhverfismál og aktívisma … Stíllinn er aðalsmerki sögunnar, það er orðið nokkuð langt síðan maður hefur séð svo mikla viðleitni til nýsköpunar í málinu, varla síðan Hallgrímur skrifaði Hellu 1990 … Margt er afar fallegt í þessari bók.“
    Steinunn Inga Óttarsdóttir / Kvennablaðið

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

1 2 3 4 5

Tengdar bækur

4.290 kr.4.590 kr.
3.690 kr.3.990 kr.
Fjölskyldulíf á jörðinni
3.890 kr.
Við erum ekki morðingjar
990 kr.3.390 kr.
Heilaskurðaðgerðin
990 kr.2.190 kr.
Eldhafid
990 kr.
890 kr.
5.790 kr.
1.490 kr.
1.290 kr.
2.690 kr.

INNskráning

Nýskráning