Sex grunaðir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 990 kr. | |||
Kilja | 2010 | 560 | 1.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2009 | 990 kr. | |||
Kilja | 2010 | 560 | 1.190 kr. |
Um bókina
Vicky Rai, sonur umdeilds ráðherra á Indlandi, er skotinn til bana í eigin veislu þar sem skrautlegur hópur fólks fagnar með honum sýknudómi vegna morðákæru. Lögreglan kemst fljótt að því að sumir gestanna komu óboðnir og jafnvel með byssu í fórum sínum. Sex manns eru teknir til yfirheyrslu og allir gætu þeir haft ríka ástæðu til að vilja Vicky feigan …
Slyngur rannsóknarblaðamaður, Arun Advani, einsetur sér að finna morðingjann og í gegnum rannsókn hans kynnumst við litríku lífshlaupi hinna sex grunuðu. En skyldi Advani vera treystandi? Eða býr eitthvað sem enginn veit að baki fyrirætlunum hans?
Sex grunaðir er óvenjuleg saga þar sem dregin er upp mynd af iðandi mannlífi Indlands og ófyrirsjáanleg atburðarásin grípur lesandann heljartökum. Vikas Swarup vakti heimsathygli með fyrstu bók sinni, Viltu vinna milljarð?, og þessi snjalla saga gefur henni ekkert eftir.
Ísak Harðarson þýddi.
4 umsagnir um Sex grunaðir
Kristrun Hauksdottir –
„… bókin er svo skemmtileg að ég gat ekki lagt hana frá mér. Ég las frammi í stofu, las inn á baði, las upp í rúmi, las meðan suðan kom upp á kartöflunum og las meira að segja úti í bíl meðan ég beið eftir dætrunum … minnir mig enn og aftur á það hvað bækur eru mikill gleðigjafi.“
Ragnhildur Vigfúsdóttir /midjan.is
Kristrun Hauksdottir –
„Ég elska þessa bók, allar 560 síður hennar með saurblöðum og kápu! Ég veit eiginlega ekki undir hvað ég get flokkað þessa bók í hausnum á mér, en hún er glæpasaga með nístandi háði, tragedíum og ævintýrablæ … skyldulesning fyrir þá sem hafa gaman að krassandi sögum.“
Jenný Anna Baldursdóttir / eyjan.is
Kristrun Hauksdottir –
„Sagan er spennandi, fyndin í margvíslegum og skrautlegum sögum af ólgandi og spennuríku lífi … hin besta afþreying … lyktirnar margfaldar í roðinu og koma lesanda á óvart, allt til síðustu síðu.“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttablaðið
Kristrun Hauksdottir –
„Þetta er vel skrifuð saga, spennandi, öðruvísi, framandi og heillandi.“
Steingrímur Sævarr Ólafsson / pressan.is