Sagan af Hlina kóngssyni
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 44 | 1.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2017 | 44 | 1.990 kr. |
Um bókina
Íslenskar þjóðsögur og ævintýri, gömul en samt glæný. Sagan af Hlina kóngssyni er hluti af nýrri bókaröð Töfrahurðar sem byggir á íslenskum þjóðsagnaarfi.
Sögurnar eru klæddar í nýjan búning sem höfðar til nútímabarna. Í heild verða þetta tólf sögur og munu jafnmörg tónskáld semja tónlist við þær í samvinnu við rithöfunda. Þessi bók er önnur í röðinni og í henni er sögð Sagan af Hlina kóngssyni.
Tónskáldið Sigurður Sævarsson hefur samið tónlist sem smellpassar við ævintýrið og sögumaður er Björn Thorarensen. Bókin er fagurlega myndskreytt af Böðvari Leós og á vel heima í bókahillum allra barna sem vilja kynnast einhverju nýju og spennandi. En sögurnar brúa einnig bil milli kynslóða og eru hluti af ævagömlum menningararfi.
Leikur og tónlist – geisladiskur fylgir með bókinni.