Saga: 2019 LVII: 2
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2019 | 276 | 3.790 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2019 | 276 | 3.790 kr. |
Um bókina
Tímaritið Saga kemur út tvisvar á ári, vor og haust. Efni þess er fjölbreytt og tengist sögu og menningu landsins í víðum skilningi. Þrjár ritrýndar greinar eru í heftinu:
Sveinn Máni Jóhannesson: Farsældarríki Jóns Sigurðssonar. Ríkisvísindi og ríkisþróun frá endurreisn Alþingis til byltinganna árið 1848.
Þorsteinn Vilhjálmsson: Kaupstaðarsótt og freyjufár. Orðræða um kynheilbrigði og kynsjúkdóma í Reykjavík 1886-1940.
Vilhelmína Jónsdóttir: „“Ný gömul hús““. Um aðdráttarafl og fortíðleika í nýjum miðbæ á Selfossi.
Í „Álitamálum“ Sögu að þessu sinni fjalla fjórir íslenskir fræðimenn um sagnfræðinga og persónuvernd. Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir skrifar um Lækningaminjasafn Íslands og í þættinum „“Úr skjalaskápnum““ skrifa Sólborg Una Pálsdóttir og Linda Björk Valbjörnsdóttir um líkamsmælingar skólabarna í Skagafirði á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Gunnar Karlsson heitinn skrifaði viðhorfsgreinina „Sjálfsvörn gamla mannsins vegna útkomu bókar um hnignun í sögu Íslendinga“ og Gunnar Sveinbjörn Ókarsson skrifar um laxveiði og friðun í lok nítjándu aldar. Auk þess er að finna í heftinu ellefu ritdóma um nýleg sagnfræðiverk og eina ritfregn. Kápuna prýðir málverk Ásgríms Jónssonar, Eyjafjallajökull, frá 1920. Horft er til jökulsins frá bæjarhlaðinu í Múlakoti í Fljótshlíð en Ásta Friðriksdóttir listfræðingur skrifar forsíðumyndargrein heftisins um menningu og listir í Múlakoti á fyrri hluta 20. aldar.