Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Sögur frá Tulipop: Sætaspætan
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 32 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2020 | 32 | 2.990 kr. |
Um bókina
Önnur bókin í bókaseríunni Sögur frá Tulipop, en fyrsta bókin, Leyniskógurinn, kom út í lok árs 2019 og fékk frábærar viðtökur.
Sætaspætan segir söguna af því þegar Freddi og Gló finna sjaldgæfan furðufugl í Sveppamýrinni. Þá hefst spennandi atburðarás þar sem markmiðið er að hjálpa fuglinum til síns heima.
Sagan var skrifuð af Signýju Kolbeinsdóttur, yfirhönnuði Tulipop og stofnanda, í samstarfi við breska handritshöfundinn Davey Moore og rithöfundinn Gunnar Helgason.
Bókin er 32 blaðsíður, í harðri kápu og fallega myndskreytt af Signýju. Hún er fullkomin fyrir eldri leikskólakrakka og yngri skólakrakka (4 til 8 ára), en vonandi mun öll fjölskyldan hafa gaman af!